Fréttir
16.02.2016
Síðasti keppnisdagur í grunn- og framhaldsskólakeppninni í dag.
Nú í dag er síðasti keppnisdagur í grunn- og framhaldsskólakeppninni. Samkvæmt 5 daga reglunni þá er síðasti séns fyrir framhaldsskólanemendur að skrá hreyfingu laugardaginn 20. febrúar. Grunnskólar ATHUGIÐ! Þar sem að í mörgum skólum landsins eru nú vetrarfrí þá höfum við ákveðið að fella út 5 daga regluna.
Lesa meira11.02.2016
5 daga reglan tekur gildi á morgun í vinnustaða- og framhaldsskólakeppninni
Í dag er síðasti dagur til þess að skrá hreyfingu á 3., 4., 5., 6., og 7., febrúar. Á morgun tekur 5 daga reglan gildi í vinnustaða- og framhaldsskólakeppninni. 5 daga reglan tekur ekki gildi í grunnskólakeppninni þar sem að margir skólar eru í vetrarfríi um þessar mundir. Einstaklingar geta enn skráð á sig hreyfingu langt aftur í tímann en það telst ekki inn í vinnustaða- og framhaldsskólakeppnina.
Lesa meira09.02.2016
Sendu inn efni
Það er alltaf gaman að fá að sjá skemmtilegar myndir/myndbönd eða heyra skemmtielga frásögn frá ykkur af ykkar upplifun af Lífshlaupinu. Með tilkomu þessarar nýju síðu er hægt að senda inn efni. Leyfði okkur að fylgjast með hvað þið eruð að gera. Minnum einnig á að nota #lifshlaupid á Instagram
Lesa meira